Í þessu þriðja bindi sagnabálks Topeliusar um Sögur herlæknisins höldum við áfram að fylgjast með lífi Bertels og Regínu. Ævintýraleg fjölskyldu— og örlagasaga sem býr yfir mikilli frásagnargleði, liprum stílbrögðum og skírskotun í sögulegar staðreyndir.
Sagan birtist fyrst sem framhaldssaga í dagblaðinu Helsingfors Tidningar á árunum 1851 til 1866 en var þó gefin út skömmu síðar í bókarformi. Íslensk þýðing er í höndum sjálfs Matthíasar Jochumssonar.
Rithöfundurinn, ljóðskáldið og blaðamaðurinn Zacharias Topelius (1818–1898) var nokkuð víðförull á sínum ferli; var doktor í sagnfræði, áhrifamaður í frelsisbaráttu Finna gegn Rússum og gegndi meðal annars stöðu rektors við Háskólann í Helsinki.rnVerk hans báru með sér mikinn keim af fornum leyndardóm, dulspeki og jafnvel alkemískum fræðum. En styttri verk hans könnuðu þau miklu áhrif sem iðnbyltinginn hafði á finnskt samfélag.